Helgin!!!
sko hérna kemur smá frá helginni!!
Föstudagur: Ég vaknaði kl. sjö til að fara í skólann, klæddi mig, fékk mér að borða og sonna, fór svo í skólann. Í litlu frímínútum hlupum við, nokkrar stelpur úr bekknum út í Fsu því að busahátíðin var en við fórum aftur til baka þegar frímínúturnar voru búnar en nokkrir strákar úr bekknum urðu eftir út í Fsu og þegar þeir komu til baka brjálaðist kennarinn gjörsamlega...hún sendi þá til skólastjóranns og sonna greyin!! En er eikkað að þessum skóla það er aldrei sett neitt upp á töfluna fyrr en allt of seint...ég og Brynja vorum búnar að bíða uppi í skóla í tvö göt svo.... nei fellur tíminn bara niður!!grautfúlt!!!
Svo seinna þann dag fórum víð í ferðalag út í Úthlíð og erum búin að vera þar!!
Laugardagur: Fórum í bíltur, mjööööög langann allveg frá tólf til fimm. Sko fyrst fórum við í berjamó, svo á Þingvelli og svo fórum við einhvern langann fjallaveg og ekkert smá fjölbreittann,
við vorum bara á svona 30-40 km hraða og fórum ofaní ójöfnu og bíllinn gjörsamlega flaug og lenti svo í annari ójöfnu þannig að við flugum aftur og lentum svo eikkað illa...en svo eftir nokkra km gerðist það sama aftur... en svo náðist þetta á endanum.
Um kvöldið sofnuðum ég, Hjölli og mamma bara snemma en ég var vakin aftur til að færa mig en svo sofnaði ég aftur og dreymdi að það var nærrum því búið að keira yfir Hjölla og ég hágrér og grét held ég líka upp úr svefni...
Í dag: Snati vakti mig með því að sleikja mig í framan. Svo pökkuðum við bara saman og fórum heim..og nú sit ég heima, nýbúin að borða pitsu og skrifa þetta!!
En endilega kommennta ef þið hafið eikkað að segja!!
Kveðja!! Ásta María<3
